Arango aðili að rammasamningi ÍAV og Veitna
- Sigurður Hilmarsson

- 20 hours ago
- 1 min read
Updated: 10 minutes ago
Arango innleiðir umfangsmikið þjónustukerfi sem hluta af rammasamning ÍAV og Veitna. Þjónustukerfið byggir á Dynamics 365 Field Service og Microsoft Power Platform ásamt umfangsmiklum samþættingum milli kerfa ÍAV og Veitna sem verður í höndum Arango.
ÍAV undirritaði nú á dögunum umfangsmikinn samning við Veitur í kjölfar útboðs sem hófst í nóvember 2024. Rammasamningur Veitna er sá fyrsti af þessu tagi þar sem viðhald lagna, heimlagnir og nýframkvæmdir eru sameinaðar undir einum samningi.
Í útboðsferlinu voru kynntar nýjar áherslur sem snúa að því að skapa heildarlausnir sem bæta hagkvæmni, þjónustu og sjálfbærni. Sem hluti af þessum áherslum er gerð krafa um öflug upplýsingakerfi og stafræn ferli sem styðja við skilvirka framkvæmd og rekstur.
Arango hefur innleitt öflugt verkbeiðna- og leigukerfi fyrir ÍAV undanfarin ár sem byggir á Dynamics 365 Field Service. Sem hluti af innleiðingu rammasamningsins mun Arango fara í víðtækar samþættingar við upplýsingakerfi Veitna. Sérstök áhersla er lögð á öryggi, rekjanleika og áreiðanleika upplýsinga, sem eru lykilþættir í rekstri mikilvægra innviða.




