top of page

Arango kaupir stóra Neyðarkallinn og styður við björgunarsveitirnar

31 minutes ago
1 min read

Arango hefur keypt stóra Neyðarkallinn í ár og leggur þannig sitt af mörkum til að styðja við ómetanlegt starf björgunarsveitanna um land allt.


Neyðarkallinn fagnar 20 ára afmæli í ár og hefur á þessum tíma verið mikilvægur þáttur í fjáröflun björgunarsveitanna. Á bak við starfið standa þúsundir sjálfboðaliða sem leggja á sig ómælda vinnu við að tryggja öryggi okkar allra, oft við erfiðar og krefjandi aðstæður.


Silja Líf Eiðsdóttir frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi afhendir Tinnu Björk frá Arango stóra Neyðarkallinn
Silja Líf Eiðsdóttir frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi afhendir Tinnu Björk frá Arango stóra Neyðarkallinn

„Björgunarsveitirnar gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Það er aðdáunarvert að sjá þann kraft, metnað og óeigingjarna starfsvilja sem einkennir þetta öfluga sjálfboðaliðastarf. Við hjá Arango erum stolt af því að geta lagt okkar af mörkum og stutt við bakið á fólkinu sem er alltaf tilbúið að koma öðrum til hjálpar þegar mest á reynir,“ segir Tinna Björk Hjartardóttir, framkvæmdastjóri Arango


Allur ágóði af sölu Neyðarkallsins rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda um land allt og nýtist til að efla starf þeirra, búnað og viðbúnað.


Við hjá Arango þökkum björgunarsveitunum fyrir þeirra ómetanlega framlag og hvetjum alla til að styðja þetta mikilvæga starf.

bottom of page