top of page
Arango_2646 copy.jpg

Breytingarstjórnun

Að virkja einstaklinga á tímum breytinga

Það er áskorun fyrirtækja á stafrænni vegferð að virkja starfsfólk og fá það til að tileinka sér nýja tækni og vinnubrögð. Virk breytingastjórnun getur skipt sköpun við innleiðing á stafrænum lausnum og spilar lykilhlutverk í að nýting hugbúnaðarins skili fyrirtækjum raunverulegum ávinning.

Þjónustur

Ráðgjöf og þjónusta í stafrænum lausnum

Arango er ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í innleiðingu og samþættingu hugbúnaðarlausna í skýinu, sem styrkja og bæta stafræna ferla fyrirtækja til hagræðingar fyrir viðskiptavini og starfsmenn

Gervigreind

Arango veitir fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf við innleiðingu og nýtingu gervigreindarlausna frá Microsoft. Við leiðum ykkur í gegnum allt ferlið, frá þarfagreiningu og vegvísi, yfir í frumgerðir innleiðingu, samþættingu og fræðslu. Þannig tryggjum við að lausnirnar skili mælanlegum ávinningi, betri þjónustu, aukinni skilvirkni og betri ákvarðanatöku. Við tengjum gervigreindarlausnir við gögn og þekkingu fyrirtækisins, tryggjum rétta aðgangsstýringu og undirbúning fyrir gervigreindarvegferð fyrirtækisins.

Hugbúnaðarþróun

Arango býður staðlaðar viðskiptalausnir byggðar á Dynamics 365 & Power Platform frá Microsoft. Í samstarfi við viðskiptavini þróum við einnig sérlausnir sem bæta framleiðni, auka skilvirkni starfsmanna og bæta verkferla innanhúss.

Greining og ferlaráðgjöf

Mikilvægt er að horfa heildstætt á bæði gögn og ferla þegar lagt er af stað í innleiðingu á stafrænum lausnum. Arango býður upp á ráðgjöf og greiningu þar sem tryggt er að horft sé bæði á heildarmyndina og þann ávinning sem innleiðing á að skila.

Hugbúnaðarleyfi

Microsoft býður upp á fjölda áskriftarleiða og hægt er að fara ólíkar leiðir við val og kaup á hugbúnaðarleyfum. Þekking Arango á Microsoft umhverfinu og þeim hugbúnaðarleyfum sem til þarf getur einfaldað og hagrætt hugbúnaðarleyfiskaup til muna.

Samþættingar

Samþætting upplýsingakerfa er vaxandi þáttur í upplýsingatæknirekstri fyrirtækja. 360° sýn á viðskiptavinagögn kallar oft á samþættingu gagna til að auka skilvirkni og bæta þjónustu. Ráðgjafar Arango hafa mikla reynslu af samþættingum og nýta til þess nýjustu tækni byggða á Microsoft Azure.

Breytingarstjórnun

Það er áskorun fyrirtækja á stafrænni vegferð að virkja starfsfólk og fá það til að tileinka sér nýja tækni og vinnubrögð. Virk breytingastjórnun getur skipt sköpun við innleiðing á stafrænum lausnum og spilar lykilhlutverk í að nýting hugbúnaðarins skili fyrirtækjum raunverulegum ávinning.

Vöktun og þjónusta

Sjálfvirkni kallar á aukið eftirlit með keyrslum og vinnslum. Í samþættum rekstrarumhverfum þar sem gögn flæða milli upplýsingakerfa er mikilvægt að vakta hvort gögn flæði óhindrað milli kerfa. Með Arango Monitor er eftirlit með samþættingum og ferlum í Dynamics 365 og Microsoft Power Platform allan sólarhringinn !

Þjónustan í hnotskurn

Að virkja einstaklinga á tímum breytinga

Reynsla okkar er sú að forsenda farsællar innleiðingar á nýjum ferlum eða hugbúnaðarlausnum er að skýr sýn sé á breytingarnar og að þeirri sýn sé miðlað til starfsfólks á gegnsæjan hátt.

Ráðgjafar Arango styðjast við helstu aðferðir breytingastjórnunnar en mikilvægt er að meta aðstæður og tilgang breytinga í hverju tilviki fyrir sig til þess að finna út hvaða leiðir henta hverju sinni.
bottom of page