top of page

Þjónustur
Ráðgjöf og þjónusta í stafrænum lausnum
Arango er ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í innleiðingu og samþættingu hugbúnaðarlausna í skýinu, sem styrkja og bæta stafræna ferla fyrirtækja til hagræðingar fyrir viðskiptavini og starfsmenn
.png)
Gervigreind
Arango veitir fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf við innleiðingu og nýtingu gervigreindarlausna frá Microsoft. Við leiðum ykkur í gegnum allt ferlið, frá þarfagreiningu og vegvísi, yfir í frumgerðir innleiðingu, samþættingu og fræðslu. Þannig tryggjum við að lausnirnar skili mælanlegum ávinningi, betri þjónustu, aukinni skilvirkni og betri ákvarðanatöku. Við tengjum gervigreindarlausnir við gögn og þekkingu fyrirtækisins, tryggjum rétta aðgangsstýringu og undirbúning fyrir gervigreindarvegferð fyrirtækisins.

Samþættingar
Samþætting upplýsingakerfa er vaxandi þáttur í upplýsingatæknirekstri fyrirtækja. 360° sýn á viðskiptavinagögn kallar oft á samþættingu gagna til að auka skilvirkni og bæta þjónustu. Ráðgjafar Arango hafa mikla reynslu af samþættingum og nýta til þess nýjustu tækni byggða á Microsoft Azure.

Breytingarstjórnun
Það er áskorun fyrirtækja á stafrænni vegferð að virkja starfsfólk og fá það til að tileinka sér nýja tækni og vinnubrögð. Virk breytingastjórnun getur skipt sköpun við innleiðing á stafrænum lausnum og spilar lykilhlutverk í að nýting hugbúnaðarins skili fyrirtækjum raunverulegum ávinning.

Vöktun og þjónusta
Sjálfvirkni kallar á aukið eftirlit með keyrslum og vinnslum. Í samþættum rekstrarumhverfum þar sem gögn flæða milli upplýsingakerfa er mikilvægt að vakta hvort gögn flæði óhindrað milli kerfa. Með Arango Monitor er eftirlit með samþættingum og ferlum í Dynamics 365 og Microsoft Power Platform allan sólarhringinn !

Þjónustan í hnotskurn
Að sjá skóginn fyrir trjánum!
Breytingar innan fyrirtækja, sama hvort þær eru tæknilegar eða breytingar á vinnulagi, snúast að langstærstum hluta um fólk, síðan ferla eða gögn og að lokum um tækni eða hugbúnað. Við sérhæfum okkur í greiningu og ráðgjöf áður en haldið er af stað í stafræna vegferð, á meðan innleiðingu á hugbúnaði stendur og eftir að innleiðingu lýkur.
Við aðstoðum þig við:
- Ráðgjöf og greiningu við val á hugbúnaði
- Aðlögun verkferla að stafrænum lausnum
- Hönnun og innleiðing stafrænna lausna
bottom of page



