top of page

SAMNINGALAUSN

Sjálfvirk stýring á samningum, áskriftum og reglubundnum tekjum frá upphafi til enda ! 

Arango Samningalausn er heildstæð lausn sem einfaldar og sjálfvirknivæðir allt ferlið frá samningagerð til reikningagerðar. Lausnin sameinar samninga og áskriftir í einni lausn og tryggir að tekjur verði til á réttum tíma, með réttum forsendum. Með samþættingu Microsoft Power Platform og Microsoft Business Central tengir lausnin saman samningagerð, samninga, verðútreikninga og bókhald í eitt samfellt flæði. Þetta dregur úr handavinnu, minnkar villuhættu og veitir skýra yfirsýn yfir framtíðartekjur og skuldbindingar.

Lausnin

Frá samningi til tekna

Ólíkt hefðbundnum lausnum sem einblína eingöngu á fjárhagshlutann í bókhaldskerfum, byggir Arango Samningalausn á þeirri nálgun að tekjustýring hefjist mun fyrr eða við fyrstu samskipti við viðskiptavin. Lausnin nær yfir allt ferlið frá upphafi til enda og tryggir samfellda og skilvirka vinnslu.

Microsoft Samþætting

Samningalausn byggir á Microsoft Power Platform og er að fullu samþætt við Microsoft Business Central. Þannig er lögð rík áhersla á að nýta það besta frá Microsoft umhverfinu. 
Samningar, viðskiptamenn og reikningar flæða sjálfvirkt á milli kerfa og kemur því í veg fyrir margskráningu gagna. Tryggir að fjárhagsgögn séu alltaf samræmd og uppfærð.

Eitt samfellt ferli

Samskipti og samningsgerð fara fram innan Microsoft Power Platform, þar sem forsendur, verðlíkön og reiknireglur eru skilgreindar á skýran hátt. Kerfið sér jafnframt um sjálfvirka útreikninga, hvort sem um er að ræða breytingar vegna vísitölu, gengis, veltu eða annarra þátta. Reikningagerð og bókun fara svo beint fram í Business Central, sem einfaldar fjármálavinnslu og dregur úr villuhættu. Útkoman er eitt samfellt flæði frá stofnun samnings til tekjufærslu, án rofs og óþarfa flakks á milli kerfa.

Fyrir hverja er Samningalausn

Lausnin sameinar alla helstu þætti tekjustýringar í einni heildstæðri lausn og einfaldar þannig rekstur fyrirtækja til muna. Lausnin hentar sérstaklega vel fyrir fyrirtæki sem byggja á reglubundnum tekjum:

  • Fasteigna- og leigufélög

  • Þjónustufyrirtæki með samninga

  • SaaS og áskriftarfyrirtæki

  • Fyrirtæki með blandað tekjumódel (áskriftir + notkun + leiga)

1.png
2.png
3.png
4.png
5.png
Auðveldari samvinna milli teyma og eftirfylgni
Hraðari úrvinnsla með minni fyrirhöfn
Samræmd framsetning og afhending samninga
Fullgildar rafrænar aðgerðir, öruggt og rekjanlegt
Sjálfbær lausn - pappírslaust ferli

Hvernig nota viðskiptavinir Arango Samningalausn?

Áskoranir 

Lausnin

Ávinningur

Mörg fyrirtæki glíma við áskoranir í rekstri sem tengjast óhagkvæmni í ferlum og takmörkuðu flæði upplýsinga. Algengt er að tvíverknaður og margskráning gagna eigi sér stað milli kerfa, svo sem CRM, samningakerfa og bókhalds, sem eykur líkur á mistökum og sóar tíma. Þá getur reikningagerð verið tímafrek, sérstaklega þegar um reglubundnar tekjur er að ræða eins og áskriftir, þjónustusamninga og leigutekjur. Einnig skapast villuhætta þegar uppfæra þarf fjárhæðir vegna breytinga á vísitölu eða gengissveiflum. Á sama tíma skortir oft skýra yfirsýn fyrir stjórnendur yfir framtíðartekjur, skuldbindingar og endurnýjanir samninga. Þessar áskoranir geta leitt til óvissu í tekjuflæði, aukins rekstrarkostnaðar og skapað þörf á tímafrekri eftirvinnu við leiðréttingar.

Lausnin veitir skýra heildaryfirsýn yfir samninga, gildistíma og skuldbindingar ásamt öllum samskiptum við viðskiptavini. Hún styður rafrænar undirritanir og tryggir sjálfvirka skjölun samninga, sem sparar tíma og eykur öryggi. Reikningagerð fer sjálfvirkt fram samkvæmt samningsforsendum, þar með talið fyrir reglubundna reikninga eins og mánaðarlega eða ársfjórðungslega innheimtu. Jafnframt sér kerfið um sjálfvirkar verðuppfærslur, hvort sem um er að ræða breytingar vegna vísitölu, gengis eða veltu. Allar aðgerðir eru rekjanlegar með fullkomnum hætti, sem eykur gagnsæi og eftirlit. Reikningar stofnast beint í Business Central og stjórnendur hafa aðgang að rauntímayfirsýn í gegnum Power BI, sem styður betri ákvarðanatöku.

Ávinningur fyrir fyrirtæki af slíkri lausn er margvíslegur og snýr bæði að aukinni hagkvæmni og betri stjórn á rekstri. Sjálfvirkni dregur verulega úr handavinnu, sem sparar tíma og minnkar líkur á villum. Um leið eykst tekjuöryggi þar sem verðlagning og útreikningar eru alltaf réttir og uppfærðir. Hraðari og markvissari innheimta bætir lausafjárflæði fyrirtækisins, á meðan betri yfirsýn með rauntímagögnum um tekjur og skuldbindingar styður við skýrari rekstrarsýn. Þetta skapar jafnframt traustari grunn fyrir ákvarðanatöku, þar sem hún byggir á áreiðanlegum og uppfærðum upplýsingum. Lausnin er einnig skalanleg og getur því vaxið með fyrirtækinu og stutt við sífellt flóknari rekstur eftir því sem starfsemin þróast.

bottom of page