top of page

Arango fyrirmyndarfyrirtæki VR 2026

  • 3 hours ago
  • 1 min read

Arango hefur hlotið nafnbótina "Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2026" í flokki smárra fyrirtækja samkvæmt könnun VR og er þar með meðal þeirra fyrirtækja á Íslandi sem þykja skara fram úr í starfsánægju, vinnustaðamenningu og mannauðsmálum.

Á ári hverju veitir VR framúrskarandi fyrirtækjum þessa viðurkenningu og er það ákaflega ánægjulegt að Arango skuli hljóta þessa nafnbót þriðja árið í röð.


Starfsfólk Arango við móttöku viðurkenningar á fyrirmyndarfyrirtæki VR árið 2026
Starfsfólk Arango við móttöku viðurkenningar á fyrirmyndarfyrirtæki VR árið 2026

Við hjá Arango viljum þakka starfsfólkinu okkar kærlega fyrir samstarfið og traustið því það er fyrst og fremst fólkið okkar sem gerir vinnustaðinn að því sem hann er.


Niðurstöðurnar voru kynntar við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu miðvikudaginn 13. maí og að venju fjölmennti starfsfólk Arango á viðburðinn.



Arango er fyrirfymndarfyritæki VR árið 2026
Arango er fyrirfymndarfyritæki VR árið 2026

Við hjá Arango óskum þeim fyrirtækjum sem hlutu viðurkenningar innilega til hamingju með árangurinn en heildarúrslit könnunarinnar má finna á vef VR með því að smella hér: Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2026


bottom of page