Arango flytur í Silfursmára 12
- 1 day ago
- 1 min read
Arango hefur flutt skrifstofur sínar í nýtt og glæsilegt húsnæði í Silfursmára 12. Um er að ræða nýtt og glæsilegt skrifstofu- og verslunarhúsnæði sem risið hefur undanfarið árið rétt við Smáralindina.

Hönnun húsnæðisins er allt hið glæsilegasta, nútímalegt starfsumhverfi, næg bílastæði og mikið er lagt í hönnun á rýmum og útliti. Hönnun hússins var í höndum "Batteríið Arkitektar" fyrir Klasa ehf. fasteignaþróunarfélag.

Í kynningargögnum fyrir húsnæðið er lögð áhersla á nútímalegt starfsumhverfi, framtíðarskipulag og staðsetningu.

Sveigjanleg og nútímaleg hönnun:
Mögulegt er að skipta upp rýmum eftir þörfum.
Rík áhersla er lögð á efnisval, orkusparnað, loftgæði og rekstrarkostnað.
Bygging húsnæðis til framtíðar skilar sér í betri nýtingu, endingu og
starfsánægju.
Græn byggð:
Sjálfbær hönnun.
Byggingin verður Svansvottuð.
Umhverfisvænt efnisval.
Markviss gróðursetning trjáplantna.
Rafmagnshleðsla í bílakjallara.
Frábær staðsetning og aðstaða:
Byggingin er staðsett í miðju höfuðborgarsvæðis með fjölbreyttum samgöngumátum.
Góð aðstaða fyrir starfsfólk sem hjólar eða gengur til vinnu
Gott aðgengi fyrir viðskiptavini

Gert er ráð fyrir verslunum á fyrstu hæð hússins og skrifstofum á efri hæðum, nægum bílastæðum kringum húsið ásamt bílastæðakjallara. Eins eru bílastæði við Smáralind ekki langt undan.

Okkur hjá Arango hlakkar mikið til að taka á móti viðskiptavinum á nýjum stað, verið velkomin í Silfursmára 12 !




