Spennandi Microsoft ráðstefnur - Maí 2026
- 20 hours ago
- 2 min read
Dagana 5-7 maí fara fram þrjár stórar Microsoft ráðstefnur á sama tíma á risa ráðstefnusvæði í Köln í Þýskalandi.
European Collaboration Summit, European AI & Cloud Summit og European BizApps Summit sameinast á ný og bjóða upp á einstakt tækifæri til að sækja yfir 300 erindi og kynningar.
Á ráðstefnunum verður farið yfir helstu lausnir og nýjungar í Microsoft 365, gervigreind (AI), Azure, Power Platform, Dynamics 365, Fabric og fleiri lausnum frá Microsoft.
Hafðu samband við Arango: arango@arango.is og fáðu upplýsingar um efnistök eða kynntu þér dagskrána á vefsíðum ráðstefnunnar.
Hægt er að kaupa aðgöngumiða að öllum 3 ráðstefnunum á sama tíma og kynna sér allt svæðið eða fókusera á hverja og eina ráðstefnu fyrir sig. Þannig getur þú valið fyrirlestra eftir þínum áherslum og áhugasviði. Nánari upplýsingar og skráning:
European Collaboration Summit: collabsummit.eu
AI & Cloud Summit: cloudsummit.eu
BizApps Summit: bizappssummit.eu
Nánar um ráðstefnurnar:
European Collaboration Summit (ECS) 2026
European Collaboration Summit er stærsta ráðstefna heims með áherslu á samvinnulausnir Microsoft, þar á meðal Microsoft 365, Teams, SharePoint, Viva og Copilot. Árið 2026 kemur saman alþjóðlegt samfélag yfir 3.000 þátttakenda og fjöldi leiðandi sérfræðinga sem miðla reynslu sinni og innsýn í þróun nútímalegs vinnuumhverfis.
European AI & Cloud Summit 2026
European AI & Cloud Summit 2026 beinir sjónum að gervigreind, skýjalausnum og Azure með áherslu á örugga, ábyrga og sjálfbæra innleiðingu. Ráðstefnan býður upp á fjölbreytt úrval erinda þar sem farið er yfir hvernig nýta má gervigreind í rekstri, sjálfvirkni og stefnumótun.
European BizApps Summit 2026
Á ráðstefnunni koma fram fremstu sérfræðingar heims á sviði Power Platform, Copilot Studio, Fabric og Dynamics 365, sem deila þekkingu sinni, reynslu og innsýn í nýjustu þróun.




