Arango fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026
Arango hlaut viðurkenninguna fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri frá Viðskiptablaðinu og Keldunni annað árið í röð.

Það voru 1780 fyrirtæki sem hlutu þessa viðurkenningu árið 2026, sem er um 5,4% íslenskra fyrirtækja. Arango var jafnframt meðal 25 efstu fyrirtækja í sínum flokki meðal lítilla fyrirtækja.
Til að hljóta viðurkenningu viðskiptablaðsins og Keldunnar þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði, en hvað nákvæmlega þarf til að teljast til fyrirmyndar ?
Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
Tekjur þurfa að hafa verið umfram 50 milljónir króna.
Eignir þurfa að hafa verið umfram 90 milljónir króna.
Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.
Aðrir þættir metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Til dæmis skil á ársreikningi og rekstrarform.
Rekstrarárin 2025 og 2024 liggja til grundvallar en tekið er tillit til rekstrarársins 2023.
Við hjá Arango erum afar stolt af þessum árangri en viðurkenningin er veitt þeim fyrirtækjum sem sýnt hafa fram á traustan, ábyrgan og sjálfbæran rekstur samkvæmt mælikvörðum Viðskiptablaðsins og Keldunnar.
Upplýsingar um fyrirmyndarfyrirtæki árið 2026 má finna hér: Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026




