top of page

Öflugra markaðsstarf með Dynamics 365 Marketing og ClickDimensions

Arango hefur á undanförnum árum veitt fyrirtækjum á íslenskum markaði ráðgjöf við nýtingu CRM hugbúnaðar í markaðssetningu. Uppsetning og stjórnun markaðsherferða, uppsetning markhópa, viðburðastýring og markaðssetning með tölvupósti. Á undanförnum árum hafa bæst við samfélagsmiðlar og aukin áhersla lögð á markaðssetningu á netinu, “customer journey”, “inbound marketing”, “Lead scoring”, uppsetning á lendingarsíðum og greining á umferð um vefinn. Helstu úrslausnarefni markaðslausna:

  • Stjórnun markaðsherferða

  • Efni á vef, vefheimsóknir og lendingarsíður “Inbound marketing”

  • Greining á vefumferð og meðhöndlun tækifæra “Lead Scoring”

  • Viðburðir og skráningar

  • Sjálfvirkni í markaðsstarfi

  • Stjórnun samfélagsmiðla “Social Media”

  • Kannanir og úrvinnsla

  • Áskriftir, póstlistar og útsendingar á markaðsefni

  • GDPR stuðningur

Dynamics 365 Marketing er öflug lausn frá Microsoft sem tekur á öllum þáttum í sjálfvirknivæðingu markaðsstarfs og hentar stærri fyrirtækjum í þeirra starfssemi. Nánar um Dynamics 365 Marketing með því að smella hér: Dynamics 365 Marketing


ClickDimensions er öflug markaðslausn innbyggð í Dynamics 365 hugbúnaðinn og hentar fyrirtækjum að öllum stærðum og gerðum og hefur verið í notkun hjá fjölmörgum fyrirtækjum hér á landi í mörg ár. Kynntu þér ClickDimensions með því að smella hér: ClickDimensions


Við hjá Arango erum með áralanga reynslu í uppsetningu, innleiðingu og þjónustu við Dynamics 365 og ClickDimensions. Hafðu samband við ráðgjafa Arango á arango@arango.is til frekari upplýsinga.



bottom of page