top of page

Sjálfvirknivæðing viðskiptaferla sem skilar árangri

  • 3 hours ago
  • 2 min read

– RPA og Gervigreindarlausnir frá Arango


Fyrirtæki eru sífellt að leita leiða til að auka skilvirkni, draga úr handvirkri vinnu og bæta gæði gagna og ákvarðanatöku. Þar kemur sjálfvirknivæðing viðskiptaferla eða Robotic Process Automation (RPA) sterkt inn auk þess sem gervigreindarlausnir eru að nýtast gríðarlega vel og stytta töluvert innleiðingar- og uppsetningartíma.


Hjá Arango sérhæfum við okkur í að hjálpa fyrirtækjum að nýta sjálfvirkni til fulls, allt frá einföldum verkflæðislausnum yfir í flóknari samþættingar og gervigreindardrifinnar sjálfvirkni.


Hvað er hægt að gera og hversu langt er tæknin komin?

Sjálfvirknivæðing reglubundinna og endurtekna verkefna er skilvirk leið til þess að auka framleiðni og fækka handtökum. Möguleikarnir eru óþrjótandi og getan til að herma eftir mannlegum aðgerðum í kerfum er orðin gríðarlega öflug. Þetta geta verið mjög ólík verkefni eins og að:

  • Móttaka og lesa í gegnum tölvupósta og skila lykilupplýsingum sem gögn í töflu

  • Vinna úr gögnum og flýta þannig fyrir afgreiðslu starfsmanna

  • Umbreyta flóknum og löngum texta/samningum í gögn fyrir myndræna framsetningu

  • Framkvæma staðlaðar ákvarðanir byggðar reglum


Stærsti kosturinn er sá að lausnirnar vinna ofan á og í núverandi kerfum án þess að fara í umfangsmikla þróun. Þetta gerir fyrirtækjum kleift að ná skjótum árangri með litlum tilkostnaði.


Einfalt dæmi sem margir viðskiptavinir eiga við er fjöldi beiðna um hreyfingarlista. Beiðnir berast yfirleitt í tölvupósti til bókhalds.

Þetta eru mikilvægar upplýsingar, en vinnan við að sækja þær er oft handvirk og tímafrek. 

Við hjá Arango sáum tækifæri til að einfalda þetta ferli.

Við bjuggum til einfalt sjálfvirkniflow í Microsoft Power Platform sem:

  • Fylgist með ákveðnu pósthólfi (t.d. arango@arango.is)

  • Greinir innihald tölvupósts (viðskiptavin, tímabil o.fl.)

  • Sækir sjálfkrafa viðeigandi skýrslu úr Business Central

  • Sendir svar beint til viðskiptavinar með PDF viðhengi


Niðurstaðan? Ferli sem áður tók tíma og handavinnu er nú orðið sjálfvirkt og gerist á sekúndum.

Það sem gerir þessa lausn sérstaklega áhugaverða er að hún byggir eingöngu á stöðluðum verkfærum sem mörg fyrirtæki eru nú þegar með, engin þörf á dýrum sérlausnum eða viðbótarbúnaði.


Svona litlar sjálfvirknilausnir geta haft veruleg áhrif:

  • Spara tíma

  • Minnka líkur á villum

  • Bæta þjónustu við viðskiptavini

Stundum þarf ekki flóknar umbreytingar, bara að nýta betur það sem er til staðar.


Við hjá Arango höfum fjölmörg raunhæf dæmi þar sem einfaldar sjálfvirknilausnir og gervigreind geta sparað mikla vinnu. Hafðu samband og tökum spjallið: arango@arango.is

 

Microsoft í forgrunni

Arango byggir allar sínar lausnir í Microsoft umhverfi viðskiptavina þar sem samspil ólíkra lykilþátta eins og Power Platform, Azure og Copilot Studio spila lykilhlutverk. Flest fyrirtæki eru nú þegar með áskriftir af þessum lausnum en eru mögulega ekki að fullnýta þá fjárfestingu. Hér er mesti ávinningurinn að nýta þau gögn sem þegar eru til staðar en nýta tæknina til að endurhugsa ferla og sjálfvirknivæða á öðrum skala en áður hefur verið mögulegt.

bottom of page