Gervigreind, er hún annað og meira en tækninýjung ?
Við hjá Arango héldum á dögunum starfsdag þar sem inntakið var gervigreind, hvernig við nýtum hana í okkar vinnu, við þróun hugbúnaðar, í okkar lausnum og almennt í daglegu lífi. Það er mikilvægt að velta fyrir sér þeim breytingum sem gervigreindin hefur í för með sér á líf okkar.
Til að setja tóninn fengum við til okkar rithöfundinn Berg Ebba til að segja okkur frá og fjalla um nýútgefna bók sína Öld ímyndunaraflsins. Í bókinni fjallar hann um gervigreind og hvaða áhrif hún hefur á líf okkar allra, ekki út frá tækninni heldur á samfélagið. Frásagan hefst á umfjöllun um einmannaleika, kaldri sýn á framtíðina með bláum tæknilegum ljósmyndum og því hvaða breytingar tækninýjungar hafa á mannlega tilveru. Áhyggjur okkar af breyttu hlutverki í lífinu og á vinnumarkaði. Við viljum öll skipta máli og vera virk í samfélaginu og þurfum að vanda okkur hvaða framtíð við erum að skapa.

Það var gaman að heyra Berg Ebba minna okkur á að gervigreindin er ekki alveg ný á nálinni. Um sé að ræða hugmyndafræði sem hafi verið í umræðunni og sköpun um áratugaskeið, en sé nú að skella á okkur af þessum krafti og hafa mikil áhrif á daglegt líf. Allir séu orðnir sérfræðingar í gervigreind og nú verði að nýta hana til allra hluta burt séð frá því hvort það skili raunverulegum ávinningi eða ekki og tók hann þar dæmi um að nýta sturtuhaus með gervigreind. Við tengjum við þessar vangaveltur og verðum vör við að oft eru uppi hugmyndir um nýtingu gerveigreindar fyrir ferli þar sem að gervigreindar er alls ekki þörf til þess að ná fram markmiðum og ávinningi. Það eru áhugaverð skilaboð til okkar sem störfum í ráðgjöf við innleiðingu gervigreindar, minnir okkur á að staldra við og horfa á hlutina með gagnrýnni hugsun.
Bergur Ebbi minnti okkur á að tæknibyltingar komi í bylgjum og oft séu væntingar til þeirra stórlega ofmetnar. Þar rifjaði hann meðal annars upp áhrif tækninýjunga fortíðarinnar á samfélagið, 2000 vandann, internetið og .com bóluna.
Bergur Ebbi talaði um að ímyndunarafl okkar gæti haft meiri áhrif á framtíðina en við teljum almennt í dag. Hann tók dæmi um hvernig sýn okkar á framtíðina hafi áhrif á hvernig hún þróast. Framtíðarsýn hafi lengi einkennst af vélmennum, fljúgandi sjálfkeyrandi ökutækjum og slíkur þankagangur hafi áhrif á það hvert við stefnum og nú sé þessi sýn smátt og smátt að raungerast. Við þurfum því að huga vel að því hvernig við sjáum framtíðina fyrir okkur, því við mótum hana sjálf eftir hugmyndum okkar um framtíðina. Sköpunargáfa geti því skipt sköpum um hvernig framtíðin mun þróast með gervigreind. Verðmæti framtíðarinnar mun því ekki liggja eingöngu í því sem tæknin getur sjálfvirknivætt, heldur einnig í því sem mannlegt ímyndunarafl getur gert með tækninni.

Það var bæði fróðlegt og skemmtilegt að fá Berg Ebba í heimsókn og bókin er afar skemmtilega skrifuð. Hún veltir upp skemmtilegum hugmyndum og ýmsum hliðum um áhrif gervigreindar og tæknibyltinga almennt.
Um leið og við mælum eindregið með því að fólk kaupi bókina hans Bergs Ebba og lesi hana má velta því fyrir sér hvort þessi umfjöllun sé skrifuð af gervigreind :).




