top of page

Spennandi starf hjá Arango !

Við hjá Arango erum að leita að ráðgjöfum, sérfræðingum og forriturum til að taka þátt í þróun og innleiðingu á spennandi lausnum fyrir viðskiptavini okkar. Arango er hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, innleiðingu og samþættingu Microsoft viðskipta- og hugbúnaðarlausna í skýinu sem styrkja og bæta stafræna ferla fyrirtækja.


Við bjóðum uppá frábært starfsumhverfi og aðstöðu þar sem þú munt hafa áhrif á hvernig þú þróast í starfi.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Taka þátt í þróun á hugbúnaðarlausnum Arango

  • Taka þátt í innleiðingu og þjónustu á ýmsum stafrænum ferlum og hugbúnaðarlausnum fyrir viðskiptavini

  • Taka þátt í að móta framtíðarsýn og vinnulag fyrir mörg af stærri fyrirtækjum landsins

Nánari upplýsingar er að finna hér á Alfreð: Arango starfsumsókn


Hjá Arango starfa einstaklingar með mikla reynslu af Microsoft Dynamics 365, Power Platform og Azure skýjalausnum sem þú gætir lært mikið af en einnig kennt þeim fullt af nýjum hlutum.


Sendu okkur ferilskrá og umsókn á netfangið starf@arango.is

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Hilmarsson framkvæmdastjóri Arango. Sími: 898 6217


bottom of page