European Power Platform Conference 2026 - EPPC26
- 4 days ago
- 1 min read
Fimmta Evrópska Power Platform ráðstefnan (EPPC) fer fram í Kaupmannahöfn í Danmörku dagana 29. júní til 2. júlí 2026.
Um er að ræða eina stærstu Power Platform ráðstefnu ársins en ráðstefnan sameinar samfélag Microsoft Power Platform í Evrópu í fjóra heila daga þar sem áhersla er lögð á lærdóm, tengslamyndun og innblástur.
Á ráðstefnunni árið 2025 var farið djúpt í lausnir Microsoft Power Platform og þátttakendum boðið upp á fjölbreytt tækifæri til faglegs vaxtar en fjöldi íslendinga sóttu ráðstefnuna og var mikil ánægja með gæði fyrirlestra.
Ráðstefnan er umfangsmikil en þar má finna yfir tíu heilsdags sérfræðinámskeið og yfir 100 sérhæfðar kynningar, fluttar af alþjóðlegum sérfræðingum og leiðtogum frá Microsoft og samfélaginu.
Á EPPC 2026 færð þú einstakt tækifæri til að afla þér sérfræðikunnáttu og kynnast nýjustu nýjungum á sviði Power Apps, Power BI, Power Automate, Copilot Studio, Power Pages, Dynamics.
Hafðu samband við Arango og fáðu nánari upplýsingar arango@arango.is eða kynntu þér efni, fyrirlestra og bókaðu miða á vefsíðu ráðstefnunnar: EPPC26




