Microsoft Copilot væntanlegt á íslensku
- Sigurður Hilmarsson
- 6 days ago
- 2 min read
Microsoft hefur nú tilkynnt að Copilot lausnir fyrirtækisins verði aðgengilegar á íslensku síðar á árinu, sem markar tímamót fyrir íslenskan vinnumarkað. Með því að veita notendum aðgang að öflugri gervigreind á íslensku opnast nýir möguleikar til að bæta verklag, sjálfvirknivæða ferla og efla framleiðni. En hverjar eru helstu lausnir Copilot og hvað gera þær ?
Hvað eru Microsoft Copilot lausnir?
Copilot er heiti yfir snjalla gervigreindaraðstoð Microsoft sem er samþætt helstu hugbúnaðarlausnum Microsoft umhverfisins. Með Copilot geta notendur fengið aðstoð í rauntíma byggða á gögnum og fyrirspurnum. Meðal helstu lausna má nefna:
Microsoft 365 Copilot – veitir snjalla aðstoð innan Word, Excel, Outlook, PowerPoint og fleiri forrita. Lausnin getur t.d. búið til samantektir, skrifað drög að skjölum, greint gögn og svarað tölvupósti.
Power Platform Copilot – einfaldar smíði forrita, sjálfvirkra ferla og gagnalausna með því að túlka leiðbeiningar á daglegu máli.
Dynamics 365 Copilot – bætir þjónustu, sölu og rekstur með innsýn úr gögnum og aðstoð sem lærir af hegðun notenda.
Copilot Studio – sérsniðin gervigreind fyrir fyrirtæki
Copilot Studio gerir fyrirtækjum kleift að búa til eigin snjallráðgjafa eða aðstoðarmenn “agents” og sérhanna notendaupplifun eftir eigin þörfum. Þar má nýta eigin gögn, samþætta lausnir við innri kerfi og móta sérhæfða aðstoðarmenn sem styðja beint við verkferla viðkomandi reksturs.
Þetta skapar tækifæri til að nýta gervigreind á markvissan og hnitmiðaðan hátt.
Við hjá Arango leggjum ríka áherslu á ráðgjöf, þjónustu og faglega innleiðingu Copilot lausna innan Microsoft Power Platform, Dynamics 365 og lausna Arango þar sem við meðal annars aðstoðum fyrirtæki við að:
Greina hvar Copilot getur haft mest áhrif í daglegum rekstri.
Innleiða lausnir sem styðja við verklag og markmið viðskiptavina.
Þjálfa starfsfólk til að nýta Copilot sem raunverulegt hjálpartæki í starfi.
Nú þegar Copilot styður íslensku eru kjöraðstæður til að hefja undirbúning að innleiðingu slíkra lausna. Með réttum undirbúningi getur Copilot orðið lykilþáttur í stafrænni umbreytingu og haft mikil áhrif á daglega vinnu starfsfólks.
Arango er tilbúið að leiða þig í gegnum þessa vegferð – hafðu samband og fáðu ráðgjöf sem skilar árangri: arango@arango.is