European Collaboration Summit (ECS 2027)
European Collaboration Summit (ECS 2027) verður haldin dagana 31. maí til 2. júní 2027 í Congress Center Düsseldorf í Þýskalandi. Ráðstefnan er einn stærsti viðburður ársins í Microsoft tækniheiminum og sameinar sérfræðinga, stjórnendur, ráðgjafa og tæknifyrirtæki víðs vegar að úr Evrópu.
Á ráðstefnunni er fjallað um nýjustu þróun í lausnum og tækni Microsoft, með sérstaka áherslu á gervigreind, Microsoft 365 Copilot, Dynamics 365, Power Platform, Copilot Studio, Microsoft Fabric, Azure, gagnaöryggi og stafræna umbreytingu fyrirtækja.
ECS 2027 er stærsta Microsoft viðskipta- og tækniráðstefna Evrópu, samkvæmt skipuleggjendum, og gert er ráð fyrir yfir 3.000 þátttakendum. Þar koma meðal annars fram yfir 50 stjórnendur frá Microsoft, meira en 120 Microsoft MVP-sérfræðingar og fjölmargir alþjóðlega viðurkenndir fyrirlesarar. Samhliða ráðstefnunni verður umfangsmikið sýningarsvæði þar sem tæknifyrirtæki og samstarfsaðilar Microsoft kynna nýjustu lausnir og nýjungar. Ráðstefnan er ætluð tæknisérfræðingum, hugbúnaðarþróunaraðilum, ráðgjöfum, upplýsingatæknistjórum, stjórnendum fyrirtækja og öðrum sem vilja kynna sér hvernig nýta má Microsoft tæknilausnir til að auka skilvirkni, efla nýsköpun og bæta rekstur fyrirtækja.
Árið 2027 verða áður aðskildar ráðstefnur á sviði Microsoft samstarfslausna, gervigreindar, skýjaþjónustu og viðskiptalausna sameinaðar í einn viðburð. Þannig gefst þátttakendum einstakt tækifæri til að kynna sér fjölbreyttar tækninýjungar, sækja sér þekkingu beint frá sérfræðingum Microsoft og mynda tengsl við leiðandi fyrirtæki og sérfræðinga í greininni.
Ráðgjafar Arango munu sækja ráðstefnuna, líkt og undanfarin ár, til að fylgjast með nýjustu tækninýjungum, efla þekkingu sína og styrkja tengslanetið.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna ásamt skráningarupplýsingum má finna á: ecs.events.




