UMSÓKNIR
Skalanleg og örugg lausn sem eykur yfirsýn, flýtir fyrir úrvinnslu umsókna og styður við öruggari ferla. Lausnin bætir þjónustuupplifun viðskiptavina með því að gera ferla skilvirkari.
Arango Umsóknir hentar fyrirtækjum og stofnunum sem taka á móti umsóknum frá viðskiptavinum. Lausnin gerir mögulegt að taka á móti umsóknum og tengdum skjölum, fá þau undirrituð og vista beint í Microsoft CRM eða Power Platform með samþættri SharePoint tengingu. Með þessu er tryggt að skjöl vistist með réttum lýsigögnum án þess að notendur þurfi að skipta á milli lausna.
Lausnin
Í lausninni er hægt að halda utan um og flokka viðskiptavini, birgja, tengiliði og aðra hagsmunaaðila, auk þess að skrá öll samskipti og umsóknir sem þurfa að vera skjalfest. Lausnin býður upp á sveigjanlega aðgangsstýringu að samskiptum og umsóknum eftir þörfum, og veitir jafnframt 360° yfirsýn yfir viðskiptavininn og allar tengdar umsóknir.
Viðskiptamannagrunnur
Lausnin er að fullu samþætt við vefþjónustur sem gera kleift að fá skjöl tengd umsóknum rafrænt undirrituð með fullgildri rafrænni undirritun, innsigla skjöl eða senda þau með öruggri afhendingu. Innan lausnarinnar er hægt að fylgjast með stöðu umsókna og tengdum aðgerðum. Fyrir tilkynningaskylda aðila er jafnframt hægt að tengja lausnina við Arango KYC, þannig að áreiðanleikakannanir séu framkvæmdar og áhættumat klárað áður en umsóknir eru afgreiddar
Rafrænar aðgerðir og tengingar
Umsóknir er hægt að stofna sjálfvirkt eða handvirkt og úthluta á einstaka starfsmenn eða teymi til að lágmarka innslátt og tvíverknað. Þær eru fyrirfram flokkaðar út frá skilgreindum viðmiðunum fyrirtækja og stofnana og bjóða upp á stöðluð svör sem fækka handtökum. Jafnframt er hægt að skilgreina fasa og verk tengd umsóknum. Umsóknir má merkja og flokka eftir mikilvægi, aðkallandi þörf eða trúnaðarmálum. Auðvelt er að koma þeim áfram til ólíkra teyma eða starfsmanna til að tryggja hraðari viðbrögð og passa að öllum skrefum ferlisins sé lokið.
Umsóknir
Auðvelt er að greina umsóknir eftir stöðu og flokkun, fylgjast með álagi og flöskuhálsum, mæla frammistöðu og skoða svar- og úrvinnslutíma. Jafnframt er einfalt að smíða mælaborð og sérsníða vinnusvæði, auk þess að stilla mismunandi tilkynningar fyrir starfsmenn og teymi sem vinna saman að umsóknum.
Yfirsýn og rekjanleiki


Auðveldari samvinna milli teyma og eftirfylgni



Hraðari úrvinnsla með minni fyrirhöfn
Allar upplýsingar um viðskiptavini á einum stað
Fullgildar rafrænar aðgerðir, öruggt og rekjanlegt
Sjálfbær lausn - pappírslaust ferli





Auðveldari samvinna milli teyma og eftirfylgni
Hraðari úrvinnsla með minni fyrirhöfn
Allar upplýsingar um viðskiptavini á einum stað
Fullgildar rafrænar aðgerðir, öruggt og rekjanlegt
Sjálfbær lausn - pappírslaust ferli
Hvernig nota viðskiptavinir Arango Umsóknir?
Áskoranir
Lausnin
Ávinningur
Algengar áskoranir viðskiptavina eru að starfsfól eyðir dýrmætum tíma í að skrá sömu upplýsingarnar á marga staði. Umsóknir berast oft eftir mörgum boðleiðum og starfsfólk þarf oft að hlaða niður skjölum, geyma á sameiginlegum svæðum eða í eigin tölvu til þess að hlaða þeim upp á öðrum stöðum. Ósamræmi getur verið í gögnun og skrefum ásamt villuhættu. Stjórnendum skortir gjarnan yfirsýn yfir umsóknir og þau gögn sem þarf til þess að getað greint frammistöðu og flöskuhálsa.
Lausnin byggir á Microsoft Power Platform og Dynamics 365 (CRM) og tengist því viðskiptamannagrunni fyrirtækja og stofnana. Lausnin heldur utan um viðskiptamannaupplýsingar og umsóknir tengdar þeim. Umsóknir eru ýmist stofnaðar sjálfvirkt út frá mörgum boðleiðum eða handvirkt. Tölvupóstum tengdum umsókninni er svarað beint úr lausninni og svartpóstar venslast sjálfkrafa við umsóknina. Stöðluð mælaborð og vinnulistar eru hluti af lausninni. Ákveðnar stillingar eru í höndum lykilnotenda s.s. flokkun, sjálfvirk ferli, stöðluð sör ásamt fleiru.
Lausnin gerir notendum kleift að fækka handtökum og fækka því að vinna í mörgum kerfum. Allar upplýsingar og staða eru aðgengileg á einum stað eftir aðgangsstýringum þannig að hægt sé að tryggja að starfsfólk sjái þær upplýsingar sem þau þurfa að hverju sinni. Lausnin auðveldar bæði stjórnendum, og starfsfólki ferlið með skýrum ferlum og bættri yfirsýn.
Áskoranir
Lausnin
Ávinningur
Algengar áskoranir viðskiptavina okkar eru að starfsfólk eyðir dýrmætum tíma í að skrá sömu upplýsingarnar á marga staði. Umsóknir berast oft eftir mörgum boðleiðum og starfsfólk þarf oft að hlaða niður skjölum, geyma á sameiginlegum svæðum eða í eigin tölvu til þess að hlaða þeim upp á öðrum stöðum. Ósamræmi getur verið í gögnun og skrefum ásamt villuhættu. Stjórnendum skortir gjarnan yfirsýn yfir umsóknir og þau gögn sem þarf til þess að getað greint frammistöðu og flöskuhálsa.
Lausnin byggir á Microsoft Power Platform og Dynamics 365 (CRM) og tengist því viðskiptamannagrunni fyrirtækja og stofnana. Lausnin heldur utan um viðskiptamannaupplýsingar og umsóknir tengdar þeim. Umsóknir eru ýmist stofnaðar sjálfvirkt út frá mörgum boðleiðum eða handvirkt. Tölvupóstum tengdum umsókninni er svarað beint úr lausninni og svarpóstar venslast sjálfkrafa við umsóknina. Stöðluð mælaborð og vinnulistar eru hluti af lausninni. Ákveðnar stillingar eru í höndum lykilnotenda s.s. flokkun, sjálfvirk vinnuferli, tékklistar og stöðluð svör.
Lausnin gerir notendum kleift að fækka handtökum og fækka því að vinna í mörgum kerfum. Allar upplýsingar og staða eru aðgengileg á einum stað eftir aðgangsstýringum þannig að hægt sé að tryggja að starfsfólk sjái þær upplýsingar sem þau þurfa að hverju sinni. Lausnin auðveldar bæði stjórnendum, og starfsfólki ferlið með skýrum ferlum og bættri yfirsýn.

