top of page

ARANGO RAFRÆNAR AÐGERÐIR

Rafræn undirritun skjala í Dynamics 365 (CRM) & Teams (O365) 

AdobeStock_164449269.jpeg

Arango undirritun

Arango býður upp á rafræna undirritun skjala í Microsoft umhverfinu. Lausnin einfaldar undirbúning og gerð skjala til rafrænnar undirritunar með notkun sniðmáta og gagna úr Dynamics 365. Utanumhald ferla og skjala sem send eru í rafræna þinglýsingu.

EINFÖLDUN VERKFERLA

Rafræn undirritun Arango styttir ferilinn við undirbúning skjala og gerð þeirra til rafrænnar undirritunar. Lausnin nýtir gögn úr undirliggjandi kerfum og minnkar innslátt. Hægt að nýta vinnuumhverfi Dynamics 365 eða Teams í Office 365

ÖRUGG VIÐSKIPTI

Með notkun rafrænnar undirritunar eykst öryggi á að réttur aðili undirriti skjalið og ekki þörf á vottum. Gögn eru send með með rekjanlegum hætti á stafrænu formi og undirritað skjal vistað strax á skilgreindum stað. 

 

RAFRÆN SKILRÍKI

Með rafrænni undirritun Arango er hægt að undirrita skjöl hvar og hvenær sem er með rafrænum skilríkjum og auðkenningu. Lausnin tengist rafrænni undirritun Dokobit og nýtir virkni sem boðið er upp á hjá Dokobit 

SAMÞÆTT VINNUUMHVERFI

Rafræn undirritun Arango er að fullu samþætt við Microsoft Dynamics 365 og Teams í Office 365. Stofnaðu skjal, sendu til rafrænnar undirritunnar og  fáðu áminningu þegar undirritun er lokið og skjalið hefur vistast sjálfvirkt tengt viðskiptamanni, tilboði eða  erindi.

AdobeStock_283590033.jpeg

Undirritun í teymi

Rafræn undirritun hentar vel í umhverfi fyrirtækja og stofnana þar sem fleiri en einn samþykkjandi þarf að vera á skjölum. Hægt er að hafa marga undirritunar aðila og stilla upp reglum og ferlum við tegund skjala.

 

Einfalt er að fylgjast með stöðu skjals, hver er með það til undirritunar og fá tilkynningu þegar undirritun er lokið.

 

Að undirritun lokinni er skjalið vistað í sögu viðskiptamanns í CRM ásamt öðrum skjölum og samskiptum. 

bottom of page