top of page

Um Arango

Arango veitir framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu við viðskiptalausnir í skýinu

Arango-Portorate-2.png

arango er stofnað 2019 en byggir á áralangri og umfangsmikilli reynslu starfsmanna í upplýsingatækni á Íslandi.


Vaxandi teymi reyndra ráðgjafa og sérfræðinga með sérhæfingu í ráðgjöf og innleiðingu viðskiptalausna og stafrænna lausna. Reynsla starfsmanna arango nær yfir flestar atvinnugreinar og hafa þeir komið að hugbúnaðarverkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins.

Naturally.

Störf

Við erum að vaxa og leitum að öflugum ráðgjöfum og sérfræðingum sem vilja taka þátt í að byggja upp nýtt ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtæki á Íslandi með sérhæfingu í viðskiptalausnum og stafrænum ferlum fyrir fyrirtæki.

​

Við höfum mikinn metnað, viljum skila af okkur vönduðum og góðum verkefnum en jafnframt að viðhalda framúrskarandi starfsanda. Ef við vekjum áhuga hjá þér, þú sért með reynslu á þeim sviðum sem við störfum á og vilt breyta til, þá hvetjum við þig til að senda okkur línu og sækja um.


Sérfræðingur/Forritari í Microsoft Dynamics 365 og Power Platform

Arango er hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, innleiðingu og samþættingu Microsoft hugbúnaðarlausna í skýinu sem styrkja og bæta stafræna ferla fyrirtækja.

Við leitum að metnaðarfullum snillingum til að taka þátt í þróun á lausnum ásamt því að vinna í verkefnum með viðskiptavinum okkar sem fara ört fjölgandi.

Við bjóðum uppá frábært starfsumhverfi og aðstöðu þar sem þú munt hafa áhrif á hvernig þú þróast í starfi.

​

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Taka þátt í þróun á hugbúnaðarlausnum Arango

  • Taka þátt í innleiðingu og þjónustu á ýmsum stafrænum ferlum og hugbúnaðarlausnum fyrir viðskiptavini

  • Taka þátt í að móta framtíðarsýn og vinnulag fyrir mörg af stærri fyrirtækjum landsins

  • Mæta í vinnuna og vera hress

​

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Að minnsta kosti þriggja ára almenn starfsreynsla á vinnumarkaði

  • Háskólapróf í tölvunar- eða verkfræði

  • Áhugi og metnaður til að kynna sér nýjungar og nýja tækni

  • Geta til að setja sig inní margvísleg úrlausnarefni

  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund

 

Fríðindi í starfi

  • Frábær félagsskapur

  • Hádegismatur

  • Góð starfsaðastaða

  • Íþróttastyrkur

 

Hjá Arango starfa einstaklingar með mikla reynslu af Microsoft Dynamics 365, Power Platform og Azure skýjalausnum sem þú gætir lært mikið af en einnig kennt þeim fullt af nýjum hlutum.

 

Ef þú vilt kynnast og tileinka þér nýja og skemmtilega tækni og vinna með ólíkum fyrirtækjum að fjölbreyttum úrlausnarefnum gæti þetta verið starf fyrir þig.
Sendu okkur ferilskrá og umsókn á netfangið starf@arango.is 

​

Ráðgjafi/sérfræðingur í Power BI og AI

Við leitum að aðila með reynslu í viðskiptagreind og þekkingu á Power BI og er opinn fyrir nýjungum og er tilbúinn að kynna sér nýja tækni í AI og Bots.


Nánari upplýsingar veitir Sigurður Hilmarsson, framkvæmdastjóri arango, í síma 898 6217 eða á netfangið sigurdur@arango.is.

bottom of page