top of page

VIÐ LEITUM AÐ FORRITARA!

  • emmy1089
  • Apr 4
  • 2 min read

Vilt þú taka þátt í þróun á snjöllum lausnum fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina, þar sem enginn dagur er eins?


Við hjá Arango leitum að lausnamiðuðum forritara í vaxandi hóp ráðgjafa og forritara. Við þróum snjallar lausnir fyrir viðskiptavini okkar sem byggja á nýjustu tækni þar sem viðskiptavinir okkar eru meðal fremstu fyrirtækja landsins svo sem þjónustufyrirtæki, heildsölur, bílaumboð, fasteignafyrirtæki, fjármálafyrirtæki o.fl.

Við bjóðum uppá frábært starfsumhverfi og aðstöðu þar sem þú munt hafa áhrif á hvernig þú þróast í starfi. Þess má geta að Arango var valið Fyrirtæki Ársins af VR 2024!


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun á lausnum í Power Platform umhverfi ásamt gervigreind (AI, Bots, Copilot)

  • Forritun á lausnum með C#, React, HTML, CSS, Logic App, JavaScript ofl.

  • Samþætting gagna og kerfa í Azure

  • Þróun á mínum síðum og öppum


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða annað sambærilegt nám

  • Reynsla af Microsoft Dynamics 365 og Power Platform er kostur

  • Þekking á Azure, SQL og gagnagrunnum er kostur

  • Áhugi á að tileinka sér nýja tækni og læra

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð


Fríðindi í starfi

  • Sveigjanleiki í starfi

  • Líkamsræktarstyrkur

  • Frábær félagsskapur

  • Hádegismatur

  • Góð starfsaðstaða svo sem pool-borð og píla


Að starfa hjá Arango

  • Fá tækifæri til að vinna í spennandi og fjölbreyttum verkefnum með viðskiptavinum frá flestum sviðum atvinnulífsins, ásamt tækifærum til að vinna með nýjustu tækni alla daga

  • Læra mikið og hratt. Við leggjum mikið upp úr því að taka nýtt starfsfólk strax inn í verkefni og læra þannig í gegnum raunveruleg verkefni

  • Góður starfsandi og gott andrúmsloft í vinnunni

  • Áhersla á sameiginleg markmið þar sem allir koma að borðinu í að móta og hafa áhrif á vöruþróun fyrirtækisins.

  • Þekkja og þróa styrkleika. Verkefnin eru fjölbreytt og við leggjum mikið upp úr því að finna styrkleika hvers og eins í teyminu, þróa þá í sameiningu og læra hvort af öðru

  • Vinna í opnu og gegnsæju umhverfi


Umsóknarfrestur er til 30. apríl og skulu umsóknir skulu berast á starf@arango.is 


Frekari upplýsingar veitir Tinna Björk Hjartardóttir, framkvæmdastjóri | tinna@arango.is | 825 8402

 

 
 
bottom of page