Arango á ECS 2026
- May 12
- 2 min read
Starfsmenn Arango sóttu nýverið þrjár af stærstu notendaráðstefnum Evrópu í Microsoft tækni sem haldnar voru samtímis í Köln í Þýskalandi: European Collaboration Summit, European AI & Cloud Summit og European BizApps Summit.
Eins og við var að búast var mikil áhersla lögð á gervigreindarlausnir Microsoft, þá hröðu þróun sem er að eiga sér stað og hvernig þær tvinnast inn í aðrar lausnir frá fyrirtækinu. Það er ljóst að framtíðin er björt með Microsoft lausnum og mjög spennandi tímar framundan. Það vinnuumhverfi og notendaviðmót sem við þekkjum í dag og störfum í daglega mun taka miklum breytingum á næstu misserum. Meiri sjálfvirkni, aðgengi að gögnum og upplýsingum mun gjörbreytast. Þeir sem hafa veðjað á Microsoft vagninn eru klárlega á réttum stað.
Ferðin gaf starfsfólki Arango mikilvæga innsýn núverandi og framtíðar umhverfi Microsoft lausna og styrkir enn frekar getu fyrirtækisins til að leiða stafræna umbreytingu og nýtingu gervigreindalausna hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum.

Ráðstefnurnar buðu upp á yfir 300 fyrirlestra og vinnustofur um Microsoft lausnir, meðal annars Power Platform, Copilot Studio, Fabric, Gervigreindarlausnir Microsoft og aðrar skýjalausnir.
Mikil áhersla var lögð á þær hröðu breytingar sem nú eru að eiga sér stað í nýtingu gervigreindar í viðskiptaferlum fyrirtækja. Ljóst er að gervigreind er ekki lengur aðeins stuðningsverkfæri heldur orðin hluti af kjarnastarfsemi margra fyrirtækja, þar sem sjálfvirknivæðing, greining gagna og aðstoð við ákvarðanatöku eru að umbreyta daglegum rekstri. Microsoft var þar í lykilhlutverki og kynnti hvernig fyrirtækið hefur náð mjög sterkri stöðu með samþættingu gervigreindar inn í allt sitt skýjaumhverfi og notendalausnir allt frá Microsoft 365 og Teams yfir í Azure, Dynamics 365 og Power Platform.

Sérstaklega vakti athygli hversu hratt þróun í low-code/no-code lausnum heldur áfram. Með Power Platform, Dataverse og Power Apps geta fyrirtæki þróað sérsniðnar lausnir, sérsniðnar gervigreindarlausnir með einföldum hætti og sjálfvirknivætt verkferla. Tengt saman gögn og kerfi á mun skemmri tíma en áður. Ný verkfæri sem nýta gervigreind gera notendum kleift að byggja upp virk viðmót, þróa lausnir og sjálfvirknivæða flókin ferli með einfaldari hætti og minni tæknilegri sérþekkingu. Þetta styttir þróunartíma verulega, sparar bæði tíma og kostnað og gerir fyrirtækjum kleift að bregðast hraðar við breytingum og nýjum þörfum í rekstri.
Einnig var fjallað um öryggi, gagnastjórnun og hvernig fyrirtæki geta nýtt lausnir Microsoft til að stýra aðgengi að gögnum og verja umhverfi sitt þegar snýr að netárásum.
Arango hefur verið í fararbroddi á Íslandi þegar kemur að ráðgjöf og innleiðingu lausna sem byggja á gervigreind og Microsoft tækni. Fyrirtækið aðstoðar viðskiptavini allt frá fyrstu skrefum við stefnumótun, markmiðasetningu og undirbúningi vegferðarinnar yfir í hönnun og innleiðingu lausna sem skila raunverulegum og mælanlegum ávinningi í rekstri. Lausnir Arango byggja meðal annars á Microsoft Power Platform, Dataverse, Copilot Studio, Dynamics 365 og Microsoft Fabric, þar sem markmiðið er að einfalda ferla, bæta aðgengi að gögnum, auka sjálfvirkni og styrkja ákvarðanatöku með öflugri nýtingu gervigreindar.




