MICROSOFT LAUSNIR
Öflug svíta viðskiptalausna í skýinu
Arango hafa mikla þekkingu og reynslu af nýtingu Microsoft lausna til að stafrænivæða ferla hjá Íslenskum fyrirtækjum. Til þess nýtum við ýmist staðlaðar CRM lausnir Microsoft í Dynamics 365 fyrir sölu- þjónustu og markaðssetningu, Power Apps og Dataverse fyrir sérlausnir og sérsniðna ferla og Azure Integration Services til samþættingar upplýsingakerfa.
DYNAMICS 365
SALES
Breyttu tækifærum í tryggan viðskiptavin með skilvirku söluferli!
Dynamics 365 Sales er öflugt sölukerfi frá Microsoft sem gerir þér kleift að halda utan um sölupípu með skilvirkum hætti og samskipti við viðskiptavini í þeim tilgangi að ná betri árangri í sölu.
DYNAMICS 365
SERVICE
Veittu framúrskarandi þjónustu með stafrænum lausnum.
Með Customer Service er unnt að halda utan um öll samskipti við viðskiptavini tengd málum, erindum og fyrirspurnum í gegnum allar samskiptaleiðir. Skráðu samskipti um Samfélagsmiðla, chat, síma eða tölvupóst allt á einum stað.
DYNAMICS 365
MARKETING
Náðu betri árangri með sjálfvirkni í markaðs-starfi og öflugri greiningu.
Dynamics 365 Marketing er öflug lausn sem gerir þér kleift að ná utan um markaðsstarf í nútíma viðskipta- umhverfi. Greina tækifæri af vef, halda utan um vegferð viðskiptavinar, halda utan um markhópa herferðir og stýra póstsendingu, allt á einum stað byggt á viðskiptamannagögnum.
DYNAMICS 365
FIELD SERVICE
Vettvangsþjónusta - Sinntu verkbeiðnum, viðhaldi og þjónustu á verkstað !
Dynamics 365 Field Service gerir þér kleift að halda utan um þjónustu- og verkbeiðnir fjarri höfuðstöðvum og stýra fólki, vélum og tækjum eftir föstum samningum eða "ad-hoc" verkbeiðnum niður á verkefni og verkstaði. Kerfið gefur fullkomið yfirlit fyrir stjórnendur yfir mannskap og tæki.
Power Platform
Power Platform er gríðarlega öflugt "low code" umhverfi sem hentar einstaklega vel til að bæta upplýsingaflæði, stafrænivæða vinnuferla og auka skilvirkni starfsmanna. Arango hefur þróað tilbúnar lausnir í Power Apps fyrir íslenskan markað auk sérlausna sem henta verkferlum viðskiptavina.
Microsoft Power Platform samanstendur af öflugum vörum frá Microsoft sem hver og ein þjónar sínum tilgangi:
Power BI
Power Apps
Power Automate
Power Pages
Copilot Studio
Hver lausn getur staðið ein og sér en með því að samtvinna þær og tengja við Office 365, Dynamics 365, Azure og fleiri lausnir er komin framtíðarlausn fyrir þína viðskiptaferla og þarfir.
Arango eru sérfræðingar í nýtingu Power Platform og innleiða það í viðskiptaumhverfi íslenskra fyrirtækja og stofnana.
Hafðu samband við Arango og kynntu þér Power Platform!
Azure Integration Services
Með notkun skýjalausna í rekstrarumhverfi er hægt að ná fram sparnaði í rekstrarkostnaði og um leið mikilli hagræðingu við samþættingar milli kerfa. Ráðgjafar Arango hafa mikla reynslu af samþættingu upplýsingakerfa þar sem gögn flæða óhindrað á milli bókhaldskerfa og CRM lausna til að auka skilvirkni og yfirsýn. Ráðgjafar Arango nýta í sínum samþættingaverkefnum nýjustu tækni frá Microsoft byggða á Azure Integration Services sem samanstendur af mismunandi þjónustum í Azure svo sem: Logic Apps, Service Bus, API Management, Event Grid, Azure Functions og Azure Data Factory.
Event-driven samþætting nýtist þegar mörg kerfi þurfa að fá upplýsingar um aðgerðir samtímis. Hér er um rauntíma samþættingu á upplýsingum milli kerfa að ræða
Tímaáætlun (schedule) samþætting nýtist þegar uppfærslur á grunngögnum eins og þjóðskráruppfærsla, viðskiptamenn (heimilisfang, sími, netfang) Þegar kerfið býður ekki upp á event-driven leiðir
Virtual Tables samþætting nýtist til að birta upplýsingar milli kerfa. Getur verið t.d þegar þú villt birta útgefna reikninga á viðskiptamann
Viltu frekari upplýsingar um nýtingu á Microsoft Azure Integration Services ? Hafðu samband við ráðgjafa Arango !